Þotuliðið
Þotuliðsblogg
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan
08.10.2007 19:02:49 / rocco

Ísland - Grænland 1-0

Þá er hann loksins kominn í bæinn og gæfan farin að brosa við honum. Skemmst er frá því að segja að ekki alls fyrir löngu hittist mannskapurinn á Stígnum. Var þar farið yfir taktík kvöldsins. Pálmi vildi ólmur fara út á Seltjarnarnes á ball með Stuðmönnum. Varð honum að ósk sinni og hélt skríllinn á ballið. Stoppað var á Miklubrautinni þar sem einn okkar manna þurfti að spúa úr sér görnunum. Svo mikið var magnið sem hann ældi að hætta þurfti að malbika um nóttina. Skömmu síðar voru allir komnir á ball. Mikið var um fögur fljóð á ballinu. Þegar hér kemur við sögu er Pálmi enn ófrelsaður maður. Hann var búinn að tala mikið um að vakna daginn eftir sem frelsaður maður, eins og hann orðaði það. Það kom á daginn. Ein stúlka sem var búin að reyna við flest alla á ballinu fyrir utan barþjóna og dyraverði, datt fyrir fætur Magnúsar Sigurðssonar og Pálma. Magnús vildi ekki kasta sér á hana en Pálmi hugsaði sig ekki tvisvar um, enda fengurinn ættaður frá Grænlandi og komin á fimmtugsaldurinn. Eins og segir i laginu: Hugurinn ber þig hálfa leið, var Pálmi kominn með huga sinn til Grænlands og dansaði eins og sannur eskimói alla leið upp í Núpalind, með elskuna í för að sjálfsögðu. Pálmi var svo heppinn að ná að smala saman fullum bíl áður en lagði af stað, en eins og allir vita eru langar ferðir með leigubíl rándýrar. Þannig lækkaði hann kostnaðinn um helming, og munar um minna. Víkur sögunni aftur að Núpalind. Í lyftunni var Pálmi farinn að skjálfa. Nú var komið að því. Hann reyndi að horfa í augun á henni en það var nokkuð erfitt því hún var svolítið tileygð. Ælti þessi kona sé að hugsa það sama og ég? hugsaði Pálmi með sér þegar hann leit niður á hana, en hún var c.a. 140 cm., eða höfðinu minni en Benóný. Lyftan opnaðist. Pálmi opnar dyrnar. Hann fer inn á klósett og kemur aftur út. Hún tekur út fölsku tennurnar. Þau fara beint í sleik og því næst leysir hún niður um hann. Þá áttar hún sig á því hvað Pálmi var að gera inni í klósetti. Smokkurinn var kominn á. Þar sem tungumálaörðugleikar voru miklir tjáðu þau sig með líkömum sínum, en þess má geta að hún var hvorki íslensku né enskumælandi. Allt gekk eins og í sögu og Pálmi frelsaðist.


» 8 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 16:21:14 / Guðfaðir

Umskipti í Þotuliði (og fataskipti, leikmannaskipti, klæðskipti og fleira)

Já nú þegar þetta er ritað eru aðeins tveir dagar í hátíðina miklu. Aðeins fjórir liðsmenn Þotuliðsins munu stana sína plykt á þessari þjóðhátíð.  Ástæður eru margar en helstar þessar:

  • Leifur Gonzales ( ljn@eimskip) gekk til liðs við Verslunarjón. Þotuliðsmenn söfnuðu saman öllu töppunum sem leifur átti með sinni fyrrverandi (sem ingi fór í sleik við gegn greiðslu) og borguðu þá með leifi. Verslunamenn leita nú eftir tilboðum í tappana.
  • Herragarðurinn Heiðar gaf ekki kost á sér að þessu sinni enda er maðurinn í fullu djobbi við að fjölga okkar ástkæra mannkyni. Garðar leitar nú í óðaönn að línuskautum í réttri stærð en hann leggur mikla áherslu á að barnið læri fyrst á línuskuta áður en það lærir að labba, hvað þá skríða.
  • Magnús Berg toyotasonur er kominn í alvarlegt samband sem þýðir að búningaleikir og hvers konar vitleysu gangur er ekki til umræðu. Þau hafa bæði unnið hörðum höndum á hrafnistu í sumar og hafa orðin fyrir miklum áhrifum þar. Til gamans má geta að magnús er bingómeistarinn á hrafnistu og frúin náð ótrúlegum árangri í útsaumi. Þau eru gríðalega vinsæl á hrafnistu og stefna á hópferð til kanarí þar sem reynt verður að slá heimsmet í milehigh club en það er jú gamall draumur magnúsar.
  • Halldór sævar hefur opnað versluna Snepill í þorlákshöfn þar sem lokkar og bling eru til sölu. Hann gaf ekki kost á sér vegna anna í sneplunum. Halldór kemur þó á þjóðhátíð og verður með sölubás við hliðiná pulsusjoppunni. Tilboð verður á pulsu og snepli, aðeins kr 370 kr ( ljn og herragarður fá sérstakan afslátt)
  • Ingibjörn Þórarinn Eldjárn fann ástina í fyrsta sinn ( hin fyrsta blessun) en gerði það á kostnað annars þotuliðsmanns. Ástin þessi fær að fljúga frítt með flugfélaginu á þjóðhátíð og fær hún að sitja í besta sætinu, the cockpitt. Ingi hefur ekki tíma í búninga að þessu sinni þar sem það verður nóg að gera hjá honum við að sýna henni dalinn og vera í sleik sem að þessu sinni er án alls kostnaðar.
  • Brynjar Smári varð fyrir miklu andlegu áfalli þegar eldjárn fann ástinina á hans kostnað. Brynjar mun bera þess merki til eilifðar og stefnir för sinni í galtalæk um helgina til að ná sönsum og semja ástarljóð til stúlkunnar sem býr nú í tveimur hjörtum.

Við sem eftir stöndum munum halda merki þotuliðsins á lofti. Það þurfti aðeins eitt símtal og við vorum komnir á forsíðu Frétta. Gaman verður að sjá hvort að hefðin sem komið var á á seinasta húkkaraballi verði endurtekin......Gera þarf þó ráðstafanir í tíma enda tekur það drjúga stund að búa til skautasvell fyrir mörgæsirnar á sviðinu.

Með þjóðartíðarkveðju,

Þotuliðið

Ps. Viðar biður að heilsa


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 21:47:16 / rocco

Ein sú lauslátasta

Loksin loksins búið að gera úr einum litlum dreng einn íturvaxinn karlmann...ótrúlegt en satt þessi saga er sönn um lítin dreng frá eyjum staðsettan í reykjavík nánarsagt á stígnum.     

      Þannig er mál með vexti að umræddur var staddur á eyjunni fögru nánar tiltekið Þrastarbar þegar atvikið skeði. þetta títt rædda atvik sem var á allra manna vörum.

      Víðir Róbertsson hefur ósjaldan verið kallaður óþroskaður og stendur það í reglum félagsins meðal annars en þó er ekki vikið frá því að hann gæti orðið að karlmanni, þar sem hann varð að einum þegar hann var að tala í síman eins og oft áður en í þetta skipti var hann að tala við vinnufélaga sinn og var að lýsa ákveðni stelpu sem stóð við hlið hans og sagði að: “hér er ein sú lauslátasta á eyjum og ef þú værir hér þá fengiru pott þétt að...” ekki leið að löngu er að stúlkan tók upp hnefan og kýldi drengin í spað og lá hann í gólfinu gráti nær hann bað um að láta hringja á sjúkrabíl og vildi helst kæra en vinir hans hýfðu hann upp úr jörðinni slóu á öxlinna og sögðu honum að hætta þessu kjaftæði og halda áfram að djamma. Morguninn eftir var hins vegar verri þar sem Víðir greyið vaknaði með þetta risa glóðurauga sem teygði sig langt niður á kinn.

 

Víðir til hamingju með fyrstu slagsmálinn

 

kv. Hóri og Bingó 


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 22:42:41 / pálmi

Villtu með mér VAKA?

Ingibjörn Þórarinn Eldjárn, eða Alli Arabi eins og hann er kallaður dags daglega, er ungur maður á uppleið. Hann stundar nám við Háskóla Íslands og er að stúdera brask og svínarí eins og viðskiptafræðin er kölluð í dag. Helsta fyrirmynd hans er braskarinn mikli frá Rauðará; Stríðir steikti öðru nafni Jón Ingi á Lundanum. En eins og mörgum er kunnugt þótti Alli Arabi valtur í sessi fyrir nokkrum misserum þar sem hann vissi ekki í hvorn fót hann ætti að stíga, og sögðu mér vitrari menn að hann væri þrífótur en það sel ég nú ekki dýrara en ég keypti það. Alli hefur mikinn áhuga á þjóðfélagsmálum og stjórnmálum almennt og hefur vonarstjarna hans risið hátt innan Sjálftæðisflokksins og nú síðast Vöku. Ungur að árum var hann kominn í stjórn Eyverja og svo virtist sem að leiðin væri greið fyrir okkar mann. Hins vegar unnu sterk öfl ötullega gegn okkar manni og komu í veg fyrir að hann yrði formaður Eyverja. Þá var líka komið í veg fyrir að okkar maður væri ofarlega á lista xD fyrir seinustu bæjarstjórnarkosningar. En okkar maður lét ekki bugast og hélt ótrauður sínu striki. Þegar hann kom í HÍ var hans fyrsta verk að skrá sig í Vöku og innmúra sig í innsta hring þar. Þar hristi okkar maður all verulega upp í hlutunum og var aðeins hársbreidd frá því að koma Vöku í meirihluta Stúdentaráðs. Ekki munaði nema 21 atkvæði að okkar maður og hans fólk kæmist til valda. Talið er að Alli hafi treyst um of á Kolkrabbann félaga sinn úr viðskiptafræðinni, en Kolkrabbinn fullyrti að hann hefði smalað fleiri tugum atkvæða. Við nánari athugun kom síðan í ljós að ekki var neitt að marka orð Kolkrabbans og því fór sem fór.
Á aðalfundi Vöku var okkar maður síðan kosinn í stjórn Vöku en þar sá hann gullið tækifæri til að komast til metorða innan Vöku og líka xD. En eins og margur veit var Helga Haarde, dóttir Geirs Haarde formanns xD, kosin formaður Vöku. Okkar maður var ekki lengi að líma sig á hana og hefur bíll okkar manns sést ótt og títt fyrir utan heimili Haarde í Vesturbæ Rvk. En það er nú ekki eina konan sem okkar maður hefur verið kenndur við enda hefur pikk up línan “villtu með mér VAKA?” heillað hverja stelpuna á fætur annari í viðskiptafræðideildinni. Okkar maður er sem sagt ekki á flæðiskeri staddur þó að reiðvöllur hans sé kominn á söluskrá. En frekari fréttir af því koma seinna.

Lifið heil 


» 27 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 23:39:39 / rocco

Ástin spyr ekki um aldur

Eftir mikla gúrkutíð að undanförnu, fannst tjakki flugmanni nóg komið, hugsaði hann, þegar hann horfði á sjálfan sig í speglinum og setti á sig rakspíran, en hann var á leiðinni á 16 ára ball, tjakkur er 21 vetra.

En tjakkur var með augastað á einni (´91 módel), enda búinn að fylgjast með henni um langa hríð þar sem hún er bekkjarsystir litlu systir tjakks, en tjakkur hitti hana fyrst á kökukvöldi hjá 6 VR.

En aftur að barnaballinu, þegar tjakkur kom á ballið eða aldursforsetinn eins og hann var kallaður, fór hann eins og segull á ísskáp á bekkjarsystur litlu systir hans.

Eftir að hafa sannfært hana um það að hann væri frekar óþroskaður og mjög seinþroska andlega sem líkamlega hófst lengsti sleikur íslandssögunar eða frá því að mælingar hófust, en hann stóð yfir í 4 klukkustundir og 33 mínútur eða þar til Kári húsvörður var farin að stjaka við þeim með kústinum

En þá er aðeins hálf saga sögð, leiðin lá upp í bæ nánar tiltekið heim til tjakks flugmanns, hann var ekki einn í för, bekkjarsystirinn var með í för. En þau voru nokkuð vel á sig komin þrátt fyrir að hafa misst mikið munnvatn síðastliðnar klukkustundir.

Þegar hér kemur við sögu viljum við biðja lesendur yngri en 16 ára að hætta að lesa því tjakkur fór alla leið eða líkt og Potti fór með Fríðu. Tjakkur sagði í sambandi við heimildarmann að ástin myndi aldrei spyrja um aldur og í hans tilviki væri það engin undantekning.

En um leið og tjakkur lét þessi orð falla, féllu þau í sleik, og eru þau enn að og ef þið eruð voða góð og hlustið þá getið þið heyrt í smjattinu í tjakki.

Það eru ekki allir paránægðir, foreldrar bekkjarins sem stelpan er í eru hræddir við að það þurfi að loka fyrir á öll heimalærdómskvöld heima hjá tjakki. Sökum þess að tjakkur myndi sitja fyrir þeim eins og róni (binni) sæti fyrir brennivínsflösku.

Benóný Friðriksson var að sögn ekki ánægður með það að vera búinn að fá tjakk flugmann í fjölskylduna enda sagði hann menn eins og tjakkur myndu bara veikja ættarstolt Binnana.

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 22:27:33 / rocco

Léttasta tengdadóttir í heimi!! Eða Fríða eins og hún er kölluð

Já það er stutt á milli skins og skúra í þessu lífi eins og ég Pálmi eða potterinn hef komist að. Ég er að útskrifast og fæ loksins lífsförunaut í stúdentsgjöf frá bestu vinum sínum, en það voru þeir Víðir og Ingibjörn sem lásu mitt hjarta og gáfu mér hana Fríðu eða eins og pabbi segir léttustu tengdadóttur í heimi.

Þegar hún stökk á móti mér útúr kassanum í þessum lögulega hjúkkubúning og með lífstíðarábyrgð frá Viðari Togga fékk ég sting í hjartað og sá strax fyrir mér minn ævileiðar félaga sem ávallt myndi fylgja mér. Ég tók hana uppúr kassanum brosandi út að eyrum meðan mamma og pabbi brostu bæði til mín, ég tók þétt utan um hana og faðmaði að mér og fann mér var farið að standa.

Víðir sá um að fylla Fríðu, því jú, ekki er það gott fyrir stelpuna í fyrsta sinn. En mér var ekkert farið að lítast á blikuna. Víði og Fríðu var farið að koma óvenju vel saman, þannig að við fórum niðrí herbergi og Svenni (ein af bleyjunum) fékk að koma með.

Ég tók Fríðu föstum tökum og byrjaði að reyna fyrir mér og Víðir leiðbeindi mér gegnum göngin en ég og Svenni vorum að prófa okkur áfram, jú allt er nú einu sinni fyrst.

En það leið ekki löngu þar til ég og Svenni vorum búnir að opna hana í allar áttir. Eftir mikin hasar ákvað ég að fara að sinna gestunum aftur enda Fríða orðin þreytt.

Ég lagði hana í rúmið og var enn að dást af henni, að hugsa sér að svona hljóðlát og létt hjúkrunarkona geti gefið svona mikið af sér.

Gestirnir voru komnir í góðan gír enda sá hási á barnum og allir á leiðinni á ball en þegar á ballið var komið brá mér heldur betur í brún, þar var Fríða mín heittelskaða í þrímennings dans við tjakk flugmann (Garðar Örn) og Hall Togga, ég reyndi að ná í Fríðu en þeir hurfu með hana á brott.

Mér leið eins og hjartað hafi verið hrifsað úr mér, ég hneig niður til jarðar og sagði “Neeiii” en þá leið yfir mig.

Næsta sem ég man, þá hrekk ég upp í rúminu, rís upp og byrja að leita Fríðu líkt og binni leitar af bokku.

Í þann mund kemur pabbi inn, hann er sorgmæddur á svip og tilkynnir mér það að Fríða hafi fallið frá, ég gríp um koddann og brest í grát, þegar pabbi kemur inn einum og hálfum klukkutíma síðar er ég kominn með ekka, hann tekur utan um mig og segir “Pálmi þetta var bara dúkka”.

En ég bregst hin versti við, gríp aftur um koddan og brest aftur í grát og segi “Neeiii”.

Í dag hef ég hins vegar sett markið hærra, nú er ég orðinn heitasti piparsveinninn á RussianBrides.com og reikna með að fá Öllu Gorgorian heim í næsta mánuði.

 

 

\ Víðir að fylla Fríðu

 

\Potti veit ekki alveg hvað hann er að gera!

 


\þeir eru að ná þessu enda Víðir að sýna þeim

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 23:01:22 / halldór

Gleðileg Jól

jæja er þá ekki kominn tími á blogg hérna? Viljum byrja á því að óska landsmönnum öllum Gleðilegra Jóla og Þakkir fyrir liðið ár (nema dómnendinni á þjóðhátíðinni:klikk:). Þá ætuu flestir meðlimir þotuliðsins að vera mættir á eyjuna nem kanski flugelda salinn sem stendur í ströngu um þessar mundir að selja höfuðborgarbúum rakettur8). Lítið hefur borið á fundarhöldum um þessi jól líkt og í fyrra en má  því um kenna að    síðasti (ekki jenni) fundarstjóri er búinn að vera á fullu í stúdents prófum.. en vonandi verður breyting þar á, hér með set ég hann í það verkefni að undirbúa fundinn... en nenni ekki að skrifa meira hérna inn þetta er meira en nóg ef þið viljið heira meira af málum þotuliðsins bendi ég á mailið ljn@eimskip.is og einnig palmi87@hotmail.com     pís át...

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 23:06:01 / Binni

Hver hreppir hnossið?

Vangavelturnar eru víst miklar um stórskilnaðinn milli Leifs (augans, ljn@eimskip eða hvað sem hann er nú kallaður) og Nínu frá Saurdölum. Talið er að skilnaðurinn verði verri en hjá Paul McCartney og Heather Mills nú á dögunum.

 

 En í samtali við undirritaðan sagði ljn@eimskip að hann hefði ekki látið Paolo Maldini búninginn frá sér við skilnaðinn, enda er hann tvíveðsett eign sem Víðir á kröfu á. Leifur hafi hent í hana gulum “sumar” Coca Cola töppum sem hann hafði safnað sér í allt SÍÐASTA sumar og sagt henni að fara og kaupa sér hlaupahjól fyrir alla 1600 tappana sem hann átti.

 

 Þetta mun víst hafa verið hans mesta eign og hélt hann vel upp á þessa tappa sína áður en að skilnaðinum kom. Leifur segist hinsvegar vera búinn að jafna sig eftir skilnaðinn (enda hætti hann með henni), en sú saga gengur víst fjöllum hærra að systir Ryans Giggs (Brianna Giggs) og Leifur (lífsaugað á milli 2 og 3 alla virka daga) séu að slá sér upp á kostnað Önnu Fríðu enda var hún eitt sinn yfir sig ástfangin af Leif.

 

En þá víkjum við að fleiri vangaveltum enda Nína orðin laus og liðug og sem miklir fræðimenn teljum við 4 menn líklega til að hreppa hnossið góða:

 

 



  1. Halldór Sævar Grímsson. Hann hefur alla sína hundstíð verið á eftir henni eins og gamall róni á eftir brennivínsflösku og segist hafa sofið hjá henni, en óvíst er vitað um Halldór, enda hálf hárlaus og búinn að vera að eiga við eigur jaxlsins að undanförnu. Halldór er líka á mikilli framabraut, enda umboðsmaður BOMBU á suðurlandi.
  2. Pálmi Harðarsson. Hann er ófrelsaður ungur maður sem leitar blessunar. Hann er nemi í FÍV og þykir góður fengur fyrir allar konur jafnt sem karla. Faðir hans á víst mikið vínsafn sem kæmi sér vel í baráttunni sem framundan er, enda Nína engin AA kona. Þess má geta að Pálmi hefur farið í “fyrstu höfn” með Nínu.
  3. Ingibjörn Þórarinn Eldjárn. Hann er framtíðarendurskoðandi Eyverja og virðist vera æviráðinn í það mikla starf. Hefur hann reynt ýmsa hluti í lífinu, s.s flugþjónn, þrífótur fyrir myndavél og áhættuleikari í klámmyndum.  Hann leitar einnig blessunar í lífinu og vonast til þess að Nína bjargi því sem bjarga skal. Þykir hann líklegur vegna þess að hann grípur allar vængbrotnar gæsir sem gefast.
  4. Jens Kristinn Elíasson. Hann er sá allra síðasti í hópnum og þykir lang líklegastur af þessum fjórum frambjóðendum til að hreppa þetta mikla hnoss. Síðasti er búinn að vera eyða með henni miklum tíma síðan þau skildu að borði og töppum, hún og Leifur. Eins og kunnugt er hefði sá síðasti byrjað með Nínu á sínum tíma ef hann hefði búið á höfuðborgarsvæðinu, enda búinn að fara ótæplega mikið í sleik við hana, að sögn Síðasta.

 

 



Nú er að bíða og sjá hver hreppir hnossið en lengjustuðlar eru sem hér segir:

 

 



Halldór: 4,50

Pálmi: 4,00

Ingibjörn: 3,00

Jens: 1,01

 

 



Vinsamlegast kjósið hér hægra megin á síðunni.

» 21 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 22:37:44 / Binni

Draumastefnumót

Garðar Örn Sigmarsson (Tjakkur flugmaður) var kominn í gírinn á Stígnum góða, laugardagskvöldið 7. október. En eitthvað ætlaði hann að vinna fram fyrir sig í kvennafarsmálum og spurði Víði um símann hjá ónefndri stúlku sem var 90 módel (9 zero) eins og Síðasti myndi orða það. Ekki var Garðari ágengt á laugardagskvöldinu eins og oft áður þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Tjakkur flugmaður heldur betur gladdist þegar hann vaknaði út á Granda með dúndrandi standpínu enda í gipsi og Hallur Togga neitaði að kippa í vininn hjá Garðari þrátt fyrir undirritaðan samning um að hann fengi húsaskjól í staðinn fyrir íkippingu frá Halli.

 

Garðar setti poka utan um gipsið og labbaði með standarann inn á bað en framundan var draumastefnumót (en hann hafði náð að húkka stúlku á kostnað Síðasta en þau eru víst að svitna saman í Sporthúsinu, hún og Síðasti). Garðar var tvær vaktir að græja sig og stefnan var sett á Pizza Hut Sprengisandi. Stoppaði hann við í blómabúð Binna og Víðis og keypti 16 rauðar rósir þar sem ein rós táknar einn lífsvetur stúlkunnar. Tjakkur flugmaður var þá klár í slaginn með 16 rósir, Ray Ban gleraugun og í hvítu jakkafötunum.

 

Hann kemur frekar snemma til leiks með Hall Togga með í för og bíður með að panta matinn því hann ætlaði aldeilis að vera herramaður mikill og bíða eftir draumastúlkunni. Svo líður og bíður og kemur símtal frá Síðasta en hann ætlaði sér að borða með Tjakki flugmanni og Hall Togga. Tjakkurinn tók ekki vel í það að fá litla kút með að borða því stefnumótið var á kostnað Síðasta. Síðasti lét ekki segjast, mætti í hvíta jakkanum sínum og settist til borðs með þeim. Tjakki var ekki farið að lítast á blikuna en í þeim töluðu stíga blómasalarnir inn og færa honum fregnir um það að smáskilaboðin sem hann fékk í massavís í tvo daga væru frá strák í 9. bekk í Hamarskóla sem er 131 cm á hæð og 60 kg og kenndur við bleijur. Tjakkur brást hinn versti við um leið og Síðasti, blómasalarnir og Hallur Togga sprungu úr hlátri.

 

Þá áttaði Tjakkurinn sig á því að það væri eitt verra en að lenda milli tjakks og bíls.

 



 



 


» 13 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 00:36:48 / Binni

Mjúkheit helgarinnar...

Stígurinn kl. 21.00: Tvö plastglös gripin, smyglað gin og tonic. Helgin var byrjuð hjá mér og Víði Róbertssyni. Eftir nokkra þannig var haldið í Loftkastalann þar sem Skapti Örn (heill og sæll) hafði boðið okkur í kappræður í pólitík. Undirritaður talaði um kvótakerfið enda var alþingismaður á staðnum. Víðir var aðallega að reyna við kvenpeninginn en eftir dræma veiði vitnaði hann í Geir H. Haarde, “það er ekki alltaf hægt að fara með fallegustu stelpunni heim af ballinu en þær gera allar sama gagnið.”  

 

Eftir mikla drykkju og miklar umræður var haldið í niðrí bæ og heyrðum við þá í kalla.is en hann sagði að Ingibjörn Þórarinn Eldjárn væri horfinn. Óstaðfestar heimildir herma að hann hafi verið á Club Óðal í Austurstræti og rifið upp kredidkort sitt um leið og 3. fóturinn kom í ljós.

Þegar hér kemur við sögu var undirritaður kominn á Hverfisbarinn og orðinn nokkuð kenndur af ca. 12 glösum og 10 bjórum. Greip hann fjarska fallega konu er honum fannst að hans sögn en staðfestar heimildir herma að hún hafi verið í utandeildinni og alls ekki fyrir augað (Lífsaugað milli 4 og 6 á Bylgjunni).

 

Dagur Sálarinnar: Hófst bullið með erfiðri vakningu á Víði kl. 11.30 og stóð til 12.30. En hann komst á lappir loksins og haldið var uppí Grafarholt til Valtýs bingókúlu og Arnþórs Henrýsonar. Var fenginn sér einn tífaldur og skellt sér síðan í Vínbúð (Heiðrúnu) og haldið áleiðis á Bakkaflugvöll. Flogið var yfir með undirritaðann, bingókúluna, “sucky sucky fucky fucky, 60 euros” henryson og Víðir steikta en hann og bingókúlan voru beltaðir saman aftur í á meðan sonur Henrýs potaði í flugmanninn alla leiðina til Eyja.

 

Mætt var í afmæli Sævalds kl 20.30 og var margt um manninn þar. Jens fór þar mikinn sem endra nær en reykingabindindi hans lauk einmitt í þessu afmæli. Sonur Emmu og Stjána kom á kranabíl og hélt uppi samræðum við fólk með leikjum (úrelt og skósólaspjalli). Svo langaði Grétari Þór Sævaldssyni í búningaleik en hann vildi leika síðasta Jaxlinn. Hann vildi nefnilega ekki vera minni maður en bróðir sinn Sigurgeir sem reyndi að útskýra pýþagóras regluna á rúðustrikaða skyrtu Jenna.

Partýið hélt áfram þegar Eyþór svelgur byrjaði að kveikja í bringuhárunum á sjálfum sér á milli þess sem hann stökk ofan í kar fullt af flöguís. Hámarkinu var náð þegar leynigesturinn Einar Gíslason FRÆNDI okkar allra mætti í 22 þúsund króna KFS treyju sinni en þá ætlaði allt um koll að keyra. Því næst byrjuðu skátasöngvar og fór Jens þar mikinn um leið og fullorðnir menn potuðu í hann.

Var haldið á ball í rútu en Jens vildi ólmur taka með sér ryksugu og fiskikar uppí Höll en menn töldu hann af því. Minnstu mátti muna að Jens og Halldóri “ruslakalli” hafi lent saman sökum þess að hann hafi verið að gramsa í eigum jaxlsins en Dóri “rusl” og Þóra Sif eru víst að slá sér upp á kostnað Síðasta. Jenni var í vígahug á ballinu og hótaði Víði barsmíðum vegna ærumeiðinga hans. Undirritaður valdi sér nýja starfsgrein á ballinu (enda hauglyginn) og var allt í einu orðinn deildarstjóri í Húsasmiðjunni þrátt fyrir ungan aldur og féll Guðrún fyrir því. Ballinu lauk síðan er Eyþór svelgur var kominn með túrtappa uppí sig en Anna Fríða var svo góð við hann að gefa honum einn.

 

Nokkrar fleygar setningar:

 

“Jenni, þú verður að hætta að reykja ef þú ætlar að stækka.” Grétar Sævaldsson

 

“Ég er búinn með 2 kippur, 2 blöndur, 2 irish og rétt orðinn kenndur.” Jenni Jaxl

 

“Ég ætla að fá nálgunarbann á þig vegna ærumeiðinga.” Jenni við Víði

 

 

 

 

 

 

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 00:47:48 / Binni

Sá allra síðasti..........

Hófust herlegheitin hjá Jaxlinum á föstudaginn var þegar hann lagði Sunny-inum fyrir utan Stíginn. Fékk að sturta sig, punginn á sér og tattooið (en jaxlinn þorði ekki öðru en að þvo sér vel þar sem hann hefur lent í útistöðum við baðverði í hverri höfn fyrir óþrifnað). Læsti hann síðan að sér þar sem einn óþroskaður maður (Víðir) var að reyna að mynda hann nakinn. Síðan var flöskunni fagnað og ekki lét sá síðasti sitt eftir liggja enda nýbúinn að bóna tattooið fyrir átökin. Síðan mættu sveitungar úr Grafarholti, þunnir eftir mjólkurferð á bænum Sportkaffi kvöldinu áður. Herbert Guðmundsson var settur á fóninn og hljómaði hann um allan Stíginn.

Þegar menn voru orðnir kenndir var haldið á hlöðuball þar sem allra síðasti Jaxlinn fór fyrir sínum mönnum með kvenmann undir sitthvorum arminum að segja brælusögur frá því í á sjónum í sumar. Þegar Jaxlinn var orðinn rúmlega kenndur þá fór hann heim (Rauðarárstíg 38, þ.e. dauðagámur fyrir valikunna menn), voru þá tveir valdir menn í góðum gír en Jaxlinn og 1. vélstjóri (Sævald) voru þreyttir á að bíða eftir óþroskaða manninum og 2. vélstjóra (Gústa) enda búnir að bíða hálft heimstímið eftir þeim.

Þegar Jaxlinn bar að garði ákvað hann að fá sér einn nagla en þá runnu á hann tvær Grímur (Grímur grimmi og Grímur kokkur) því þá sér hann lyklana að Sunny-inum allt í einu komna á vergang og brást sá síðasti illa við. Hann kenndi óþroskaða manninum og 2. vélstjóra um hvernig lyklarnir komust á vergang. Ætlaði síðasti að setja í gang freygátu sína og sigla heim til Kópavogs en þar sem er engin höfn þar náði mannskapurinn að telja hann af því. Eftir þetta sofnuðu menn vel og illa og meira að segja vaknar 1. vélstjóri upp við það að 2. vélstjóri er að reyna að komast í kokið á honum. En þannig fór um sjóferð þá.

Kveldið eftir var haldið upp í sveit til vélstjórnarmanna þar sem flaut allt í kellingum, brennsa, klámmyndum, sjóvinnumyndum og tóbaki. Jaxlinn (sá allra síðasti) hélt vel utan um kvenpeninginn og voru menn orðnir óvenju snemma kenndir enda Papar að spila fyrir dansi á Nasa. Var haldið á ball á tveimur freygátum en sumir urðu sjóveikir og urðu að fara heim sökum þess og voru bornir í land.

Það var varla við manninn mælt inn á Nasa því óvenju drykkfelldur lýður var þar mættur á stjá. Jaxlinn fór strax að gera sig líklegan við kvenpeninginn á hlöðugólfinu enda hokinn af reynslu í þeim efnum enda með meirapróf undir belti. Tók hann upp talstöðina sína og kallaði til föður síns Ella þegar "híf op æpti kallinn" glumdi um Nasa og söng honum lagið um leið og hann dansaði eins og upptrekktur lítill jólasveinn. En allt fór vel að lokum og síðasti jaxlinn unni vel enda orðinn rúmlega kenndur við sopann...

Nýjustu fréttir af síðasta jaxlinum herma að hann sé að skipuleggja jaxlahelgi á kópaskeri helgina 15-17 sept. og eru allir sjómenn landsins að sjálfsögðu boðnir velkomnir enda byrjað að dreyfa boðskortum.


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 17:37:20 / pálmi

Hinn eini sanni

Oft gerist það þegar breytingar verða á lífi fólks að það gefur ýmis fögur fyrirheit til fólksins í kringum sig. T.d. getur þetta varðað það að hætta að drekka, djamma, djúsa, sötra og kannski taka. Þetta eru svona nokkurs konar áramótaheit en í þessu tilfelli eru þetta eiginlega svona háskólaheit......sem kannski verða ENDURSKOÐUÐ seinna meir.....kviss bamm búmm

 

 



Það sem skítur hins vegar mjög svo skökku við er sá sem gaf þessi fögru fyrirheit hefur ekki allveg staðið við þau. Það má eiginlega með sanni segja að hann hafi bara alls ekki staðið við þau.

 

 



Einn laugardag núna í ágúst var þessi háskóladrengur staddur í íbúð sinni á nesinu sem kennt er við seltjörn. Félagi háskóladrengsins kom þá í heimsókn og sagði að þeir væru að fara á ball. Vitandi um fögru fyrirheitin sagðist háskóladrengurinn að sjálfsögðu ætla að fara á ballið. Ferðinni var heitið austur fyrir fjall. Ég veit ekki allveg hvaða fjall en þetta er bara frasi sem er alltaf notaður. Þeir félagar voru vel nestaðir af alkahóli. Já gott fólk þið lásuð rétt. ALKAHÓLI. Jæja þeir félagar komu sér fyrir í sumarhúsi einu sem staðsett er þarna einhversstaðar í Grímsnesi örugglega. Þeir hófu drykkjuna strax og eftir nokkra ölstera og g&t þurftu menn að koma sér á ballið. Hringt var á leigubíl og kom hann kom og pikkaði þá upp. Háskóladrengurinn var kominn “í gírinn” eins og það kallast og ætlaði sko aldeilis að skemmta sér. Háskóladrengurinn splæsti í taxann báðar leiðir enda greifi hér á ferð. Honum fannst ekkert fútt í því gera þetta á venjulega mátann og keypti því hlut í taxafyrirtækinu upp á 240 evrur. Hluturinn var staðgreiddur með debetkorti frá sparisjóð ve að sögn óla el.  Ánægður með kjarakaupin skundaði háskóladrengurinn á ball og skemmti sér mjög vel að sögn félagans en eins og flestum er kunnugt er háskóladrengurinn ekki til frásagnar um það sem skeði síðar þetta kvöld vegna annarlegs ástands.

 

 



Og svo um seinustu helgi var háskóladrengurinn með dúndrandi partý á nesinu. Lætin voru svo mikil að hringt var í Braga á fluginu um miðja nótt og kvartað yfir óhljóðum. Aldrei þessu vant sperrti Bragi eyrun og kynnti sér málið. Því miður náðist ekki í Braga við vinnslu greinarinnar. Hann bað samt að heilsa.

 

 



Það er því kannski rétt að háskóladrengurinn hætti að gefa svona fyrirheit eða allaveganna endurskoði þau betur næst.....

 

 



Kveðja frá eyjunni fögru,

Pontíus pílatus


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 12:47:52 / Guðfaðir

Menn í miklum menntahug og karið hans Jenna

Karið hans Jenna og menn í menntahug

Það voru 6 vaskir Vestmannaeyingar sem lögðu upp í ferðalag með nesti og nýja skó. Ferðinni var heitið í Lund nokkurn kenndan við Þröst þar sem HerraGarðurinn hafði nuðað í þeim alla vikuna um að koma með sér í útilegu. Eftir mikið puð og stuð ákváðu eyjapeyjar að slá til.

Lagt var upp síðdegis föstudag og samanstóð þetta fríða föruneyti af: Undirrituðum, Jens K(ar) Elíasson, Gústi retta, Sævald Páll, Karl Eiríksson og Magnús Sigurðsson. Þegar menn mættu á staðinn fengu þeir konunglegar móttökur hjá gestgjafanum Garðari sem bauð þá velkomna með veigum, stólum, borðum og öðrum lúxusvörum. Gistingin var þó í boði Jenna þar sem hann hafði splæst í nokkur Rúmfatalagerstjöld, en heyrst hefur að Jens sé deildarstjóri í holtagarðinum, hafi fengið stöðu sem var ætluð Leif á sínum tíma. Þannig það er á hinum ýmsu vígstöðum þar sem Jens er að krafsa í stöðugildin hans Leifs.

þegar leið á kvöldið fóru menn að blanda geði við kollega sína úr Háskólanum í Reykjavík og uppúr þeim viðræðum spruttu hinar ýmsu námsbrautir, svo sem Véla- og Orkufræðibraut þar sem Eðlisfræði-Sævald ætlar víst að stunda nám í vetur. Aðrir létu sér hefðbundnar námsbrautir nægja og það eru ófáir háskólanemarnir sem ætluðu að hitta peyjana í HR síðastliðinn mánudag.

Eins og sönnum eyjamönnum sæmir voru menn orðnir rúmlega mjúkir um miðnætti og ákváðu að kveikja upp í bálkesti. Til að allt færi löglega fram náði Jens í Björgó-flíspeysuna og tók að sér yfirumsjón með brennunni. Háskólanemar úr Rvk settu samt ekki mikið traust á Björgó-Jaxlinn og slökktu ítrekað í bálinu.

Þegar klukkan var farin að skríða 2 ákvað Jenni að fá sér nettan lúr í Sunny-drottningunni, hann ætlaði víst aðeins að hvíla augun. Hann var þó ekki búinn að dotta nema sem samsvarar 5 mílna kipp þegar 3 óprúttnir aðilar ákváðu að gefa honum forláta fiskikar að gjöf, en eins og almúginn veit, þá er Jens annálaður sjóhundur með 2 tattoo. Gjöfinni ákváðu þessir heiðursmenn að koma fyrir ofan á þakinu á Sunny-inum. Ekki vaknaði Jens þó við þessar aðgerðir og því ákvað ónefndur Róbertsson að fara með gjöfina á næsta level og prófa hvernig það hentaði sem heitur pottur, þótt ekki færi mikið fyrir vatninu. En það hlaut að koma að því að Jaxlinn vaknaði og sá þá mann í annarlegu ástandi í kari ofan á Sunny litla og 2 samsærismenn standandi hjá. Allir 3 voru hins vegar fljótir að láta sig hverfa, enda er Jens í vígahug ekkert djók. Jenni þreif þar næst í karið og fleygði því af bílnum, og uppskar þessar flottu sportrendur á toppinn í leiðinni.

Menn voru samt ekki af baki dottnir, þrátt fyrir vanþakklæti Jennans, þeir voru staðráðnir í að koma gjöfinni út. Þeir tóku karið á öxlina og köstuðu því á tjald gestgjafans, enda áttu þeir eftir að þakka fyrir þessar konunglegu móttökur fyrr um kvöldið. En þeir uppskáru ekkert nema vanþakklæti eins og hjá Jenna og hreint ótrúlegt að menn kunni ekki að meta svona góðar gjafir, enda eru góð fiskikör ekki á hverju strái. Menn voru samt að velta fyrir sér hvort gestgjafinn væri kannski sofandi og hristu því tjaldið blítt til að vekja manninn. Þá heyrðust bara einhver óhljóð úr tjaldinu og eru menn ekki á eitt sammála um uppruna þeirra hljóða. Hugsanlega voru peyjarnir að trufla á óheppilegum tíma.

Undirritaður ætlar að nota tækifærið og biðja Gestgjafann um að svara í símann sinn því mig langar að þakka fyrir góða útilegu og vonandi verður þetta endurtekið í bráð.

Kveðja, VR

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 21:34:46 / leibzig

SOS !!!!!

Tilkynning var að berast frá lögreglunni í Reykjavík að 14 ára drengur sé týndur. Síðast sást til hans á laugarveginum á göngu í gay pride göngunni, faðmandi Pál Óskar og Friðrik Ómar. Hann er ennþá með bleiju og sveigju. hér er mynd af piltinum
allar upplýsingar eru vel þáðar.

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 15:29:37 / maggi

Þotuliðið 06


Er Leifur með?



Sama hvað hver segir... við verðum alltaf flottastir! Í þessum töluðu orðum eru tveir 40 feta gámar af pappír á leiðinni til dómnefndar.

Til hamingju Afródítur

,,People hate us because of genetics, it's the truth"

Er að henda inn myndum inn á http://www.kanturinn.com/?hk=11&sida=10

Sæleriði

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5